Hlaupakombó Arnars Péturs

Það er vitað mál að næring skiptir miklu máli fyrir frammistöðu og almenna heilsu. Það mun enginn íþróttamaður ná langtíma árangri nema með því að huga vel að mataræðinu. Góð næring fyrir og eftir æfingar getur hjálpað okkur að ná í eitt af þessum litlu auka prósentum sem koma fyrir utan æfingar. Auðvitað skiptir mestu máli að standa sig á æfingum en eftir því sem við komumst lengra þá fara litlu prósentin að skipta meira máli. Arnar Pétursson margfaldur Íslandsmeistari í hlaupum hefur sett saman fullkomið kombó fyrir fólk sem vill góða næringu fyrir og eftir æfingu og alla sem vilja góða og holla næringu hvort sem þeir eru að æfa eða ekki.


Butterfly

Þeytt smjör, avocado, rifsberjasulta og salt


Berry Bliss

Bláber, jarðarber, hindber og epli




Butterfly

Samlokan er þannig að þú ættir að geta skellt þér á hana og farið á æfingu stuttu seinna. Er í raun morgunmaturinn hans Arnars fyrir hlaup sem er sett í form samloku. Þetta er brauð með þeyttu smjöri, sultu, avókadó og smá salti yfir. Þarna færðu fullt af kolvetnum í brauðinu og sultunni og fitu og steinefnum í avókadóinu.



Berry Bliss

Ef Arnar bætir einhverju við morgunmatinn er það einhverskonar berjablanda. Berry Bliss er sú berjablanda bara í formi djús. Þarna er að mati Arnars hin fullkomna blanda fyrir æfingar.  Berry Bliss er reyndar líka frábær beint eftir æfingu þar sem hann er stútfullur af andoxunarefnum sem hjálpa til við endurheimt.